Tix.is

Um viðburðinn

Gunnar Þórðarson 75 ára

Gunnar Þórðarson  fagnar 75 ára afmæli í janúar 2020 og af því tilefni verður blásið til glæsilegra tónleika í Eldborg Hörpu þann 7. mars. Gunnar hefur átt einkar glæsilegan og farsælan feril sem laga og texta höfundur, eftir hann liggja 830 lög og ein ópera,  mikið af lögum Gunnars hafa fyrir löngu fest sig í sessi í Íslensku þjóðarsálinni. Nægir þar að nefna lög eins og Bláu augun þín, Fyrsti kossinn, Við Reykjavíkur tjörn, Himinn og Jörð og Þitt fyrsta bros. Þessi lög ásamt fleiri dægurperlum Gunnars munu hljóma í Eldborg þann 7. mars næstkomandi.

Ekki missa af þessum einstaka viðburði.

Söngur:
Eyþór Ingi
Jóhanna Guðrún
Stefanía Svavars
Eiríkur Hauksson
Gunnar Þórðarson

Söngur og raddir:
Alma Rut
Íris Hólm
Kristján Gíslason

Hljómsveit:
Haraldur V Sveinbjörnsson: Hljómsveitarstjórn / Hljómborð
Ólafur Hólm: Trommur
Friðrik Sturluson: Bassi
Diddi Guðnason: Slagverk
Friðrik Karlsson: Gítar
Matthías Stefánsson: Gítar / Fiðla
Jón Ólafsson: Píanó / Hljómborð

Umsjón: Dægurflugan