Í ljósi áframhaldandi samkomutakmarkana hafa tónleikarnir fengið nýjar dagsetningar sem eru 29. og 30. desember 2021 - allir miðar gilda áfram.
Miðahafar fá nánari upplýsingar sendar í pósti frá miðasölu Hörpu. Ef þið sjáið ekki póstinn gæti hann hafa lent í ruslhólfinu ykkar.
Nánari upplýsingar veitir miðasala Hörpu á midasala@harpa.is
Gus Gus verður 25 ára árið 2020 og blæs af því tilefni til sérstakra afmælistónleika í Eldborgarsal Hörpu.
Af þessu sérstaka tilefni bjóðum við gamla hljómsveitarmeðlimi sérstaklega velkomna til að flytja mörg af vinsælustu og bestu lögum hljómsveitarinnar í gegnum árin.
Nú þegar hafa eftirfarandi söngvarar staðfest þáttöku sína:
DANÍEL ÁGÚST HARALDSSON
EMILIANA TORRINI
JOHN GRANT
HÖGNI EGILSSON
MAGNÚS JÓNSSON
PRESIDENT BONGO
Skemmst er að minnast ótrúlegs kvölds fyrir rúmi ári síðan þegar hljómsveitin setti upp sína fyrstu tónleika í þessum glæsilegasta tónleikasal landsins. Og nú verður enn bætt í, þannig að búast má við upplifun sem seint mun gleymast.
Góða skemmtun.