Tix.is

Um viðburðinn
Teenage Choir of Love and Sex er kór sem samanstendur af ungu fólki á aldrinum 15-19 ára. Þessi kór hefur skapað söngvasafn undir heitinu The Teenage Songbook of Love and Sex.

Kórinn syngur lög sem hann hefur samið sjálfur og lögin fjalla öll um þeirra eigin reynslu af rómantískum samböndum og kynlífi. Meðlimir kórsins syngja fyrir sig en líka fyrir hvert annað. Kórinn ferðast um heiminn með söngvana og á hverjum stað sem þau heimsækja kynnast þau öðru ungu fólki og þau syngja saman. Þau syngja um ástina, forvitni, um það að missa mey/sveindóminn og um ástarsorgina. Þau syngja fyrir allar druslur, fyrir þau sem koma útúr skápnum en líka um kynferðislega misnotkun, ótta og bælingu og fleira og fleira.

Skilaboðin eru skýr: hvort sem þú ert að upplifa einhverjar nýjar víddir í þínu eigin kynlífi, ert að verða ástfangin/n, líður vandræðalega með eitthvað eða ert fórnarlamb kynferðisofbeldis o.s.frv. - þá ertu ekki ein/n/tt!

Höfundar: Ásrún Magnúsdóttir og Alexander Roberts

Meðhöfundur og tónlistarstjórn: Teitur Magnússon

Meðhöfundar og flytjendur : Lísbet Sveinsdóttir, Marta Ákadóttir, Salóme Júlíusdóttir, Una Barkadóttir, Karen Nordquist Ragnarsdóttir, Egill Andrason, Haukur Guðnason, Ísafold Kristín, Uloma Osuala, Katla Sigurðardóttir Snædal, Óliver Ali, Sverrir Gauti Svavarsson, Hanna Gréta Jónsdóttir, Kolfinna Ingólfsdóttir og Karólína Einarsdóttir.

Kórstjórar: Sigríður Soffía Hafliðadóttir og Aron Steinn Ásbjarnarson

Frumsýnt: Meteor Festival, BIT Teatergarasjen, Bergen, Noregi og Reykjavík Dance Festival, Tjarnarbíói, Reykjavík, Iceland.

Framleitt af: BIT Teatergarasjen, Teenagers in Reykjavík, Reykjavík Dance Festival, the Nordic Residency Platform, NORDBUK and apap - Performing Europe 2020 which is co-funded by the Creative Europe Programme of the European Union.

Lengd: 45 mínútur


Um Alexander og Ásrúnu
Ásrún og Alexander hafa unnið náið saman í þónokkur ár við gerð mismunandi dans - og sviðslistaverka. Áhersla þeirra er að víkka út ríkjandi hugmyndir um dans og sviðslistir og þróa þau verk í samstarfi við einstaklinga sem hafa raddir sem við heyrum sjaldan í. Samstarf þeirra tekur á sig mismunandi myndir, allt frá því að vera meðhöfundur, danshöfundur og dramatúrg, yfir í að vera listamaður og listrænn stjórnandi. Þau hafa saman skapað verk með og i samstarfi við unglinga, íbúa í blokk, ásamt því að skapa viðburði í heimahúsum, svo eitthvað sé nefnt.

Verkum þeirra hafa verið vel tekið bæði innanlands sem og utan, þau hafa hlotið verðlaun og tilnefningar hér heima, sem og verið boðið að sýna í leikhúsum og hátíðum í Evrópu og víðar.

Ásrún er danshöfundur sem hefur mikla reynslu í að vinna með einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu, sem og að skapa verk og halda vinnustofur með atvinnu - og áhugamanneskjum.

Verk Alexanders sem listamanns snúast um að skapa rými fyrir aðra og skapa aðstæður þar sem raddir þeirra geta heyrst. Sem listrænn stjórnandi meðstýrir hann Reykjavík Dance Festival (2013-) og Unglingnum í Reykjavík (verkefni sem hófst 2014 og snýst um að deila listrænni stjórnun með ungmennum í Reykjavík).