Tix.is

Um viðburðinn

Það er hér með gjört heyrinkunnugt að tónleikar Prins Jóló verða haldnir í Frystiklefanum Rifi laugardagskvöldið 7. desember. Í för með Prinsinum verða Benedikt Hermann Hermannsson og Björn Kristjánsson. Saman ætla þeir að leika skástu lög Prinsins í hátíðlegum útgáfum og dusta rykið af nokkrum þolanlegum jólalögum úr eigin smiðju. Taktu 7. desember frá til að eiga heilaga stund með hirðinni.