Tix.is

Um viðburðinn

UPPSELT ER Á VIÐBURÐINN

Hinn eini sanni Trevor Noah er á leiðinni til Íslands. Trevor er þekktasti grínisti Afríku, þáttastjórnandi Emmy verðlaunaþáttanna The Daily Show, hefur selt upp sýningar í fimm heimsálfum og hefur skrifað, framleitt og farið með aðalhlutverkið í átta grín sérþáttum (e. comedy special), en sá nýjasti er Son of Patricia á Netflix. Hann er þekktur um allan heim fyrir að taka á pólítik og fréttum samtímans með innsæi og húmor sem hittir í mark.

Listinn yfir verðlaun sem hann og þáttur hans hafa hlotið eða verið tilnefnd til er langur, en þar á meðal má nefna GLAAD, Writers Guild Award, NAACP, MTV Movie & TV Awards, Creative Arts Emmy Award, og Primetime Emmy. Hann hefur verið nefndur sem einn af 100 áhrifamestu manneskjum heims af Time og einn af 35 áhrifamestu fjölmiðlamönnum heims af The Hollywood Reporter.

Trevor er fæddur í Suður-Afríku, á suður-afríska móður og hvítan föður af Evrópuættum. Hjónaband foreldra hans var ólöglegt á tímum aðskilnaðarstefnunnar og þurftu þau að halda því leyndu, en uppeldi hans er oft stór hlutu af uppistandinu þar sem hann deilir reynslu sinni og sögum frá æsku.

Fjögur verðsvæði verða í boði í Laugardalshöll:
A+ svæði: 15.990     (appelsínugult á mynd)
A svæði:   12.990   (rautt á mynd)
B svæði:   11.990   (blátt á mynd)
C svæði:     8.990 (grænt á mynd)

Sjá mynd af salnum hér

Umsjón: Sena Live