Tix.is

Um viðburðinn

Villi Neto og Stefán Ingvar gera upp æsku sína, menntun og uppeldi í nýrri uppistandssýningu.

Villi ólst upp í hitanum í Portúgal - heitu loftslagi og heitu félagslífi. Flutti síðan til Íslands 14 ára gamall í kuldann, kalt loft og fáa vini. Hann hefur verið í menningarsjokki síðan. Stefán Ingvar var skakkur frá því að hann var 16 ára þangað til að hann rankaði við sér 22 ára gamall, í sviðslistanámi, og dreif sig í meðferð. Síðan þá hefur hann reynt að vinna úr gremjunni sinni en það gengur ekkert vel.

 

Kynnir kvöldsins er Hákon Örn Helgason, hann er sviðslistamaður og spunaleikari í Improv Ísland.

Villi og Stefán hafa gert fullt af hlutum saman, enda hafa þeir verið bestu vinir í síðan í menntaskóla!. Þetta er í fjórða sinn sem þeir koma fram á uppistandskvöldi saman. Þeir hafa t.d. troðið tvisvar upp með uppistandshópnum Fyndnustu mínum á Hard Rock café fyrir troðfullum sal og öllum fannst ógeðslega gaman.

Endurmenntun var frumsýnd í Tjarnarbíó 28. nóvember og fara þeir nú á túr með sýninguna á Græna hattinn á Akureyri, Frystiklefann á Rifi og ljúka síðan sýningum í gamla nýlistasafninu á Kex hostel. Síðast seldist upp löngu fyrir sýningu og við gerum ráð fyrir því að það verði stappað aftur og ekkert minna skemmtilegt en síðast.