Tix.is

Um viðburðinn

ARG viðburðir kynna með stolti JÓLATÓNLEIKAR KK & ELLEN.

Jólatónleikar KK og Ellenar hafa verið einn af ómissandi og föstu liðunum í aðdraganda jóla hjá mörgum siðastliðin ár. 

Árið í ár verður engin undantekning og verða þau á ferð og flugi í nóvember og desember ásamt Jóni Ólafs pianó- og hljómborðsleikara.

Einstök aðventustemning hefur ávallt skapast á þessum tónleikum, þar sem látlaus og hugljúfur flutningur og framkoma þeirra skapar einstaka og fallega kvöldstund í aðdraganda jólanna.

Miðaverði hefur verið stillt í hóf og verður litlar 4.990 kr.

Grindavík - Fimmtudagurinn 5. desember
Vogar - Laugardagurinn 7. desember
Selfoss - Sunnudagurinn 8. desember
Keflavik - Fimmtudagurinn 12. desember
Hveragerði - Föstudagurinn 13. desember
Mosfellsbær - Sunnudagurinn 15. desember
Akureyri - Fimmtudagurinn 19. desember
Blönduós - Föstudagurinn 20. desember
Hafnafjörður - Laugardagurin 21. desember