Tix.is

Um viðburðinn

Tónleikarnir munu fara fram dagana 5.- 9. mars 2021

föstudagur 5. mars kl. 20 - fá sæti laus
laugardagur 6. mars kl. 20 - aukatónleikar
sunnudagur 7. mars kl. 20 - fá sæti laus
þriðjudagur 9. mars kl. 20  

Víkingur Heiðar Ólafsson sem var útnefndur listamaður ársins á Gramophone-verðlaununum árið 2019 heldur tónleika á Listahátíð. Í fyrra hreppti þessi framúrskarandi tónlistarmaður einnig verðlaun BBC Music Magazine fyrir einleiksplötu ársins auk þess sem plata hans var valin sú besta þvert á alla flokka. Þá hlaut hann þýsku tónlistarverðlaunin Opus Klassik, auk Íslensku tónlistarverðlaunanna.

Á tónleikunum leikur hann óviðjafnanlega efnisskrá af nýrri einleiksplötu sem kemur út hjá Deutsche Grammophon á vormánuðum. Á fyrri hluta tónleikanna teflir hann á einstakan hátt saman hljómborðsverkum Claude Debussy og Jean-Philippe Rameau, tveggja risa franskrar tónlistar, sem tengjast djúpum böndum þó 150 ár hafi skilið þá að. Að loknu hléi flytur hann svo eitt helsta meistaraverk rússneskra tónbókmennta, Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgsky, í stórglæsilegri umritun Vladimirs Horowitz.

Víkingur á netinu:
https://www.vikingurolafsson.com
https://www.facebook.com/vikingur.olafsson/
twitter @vikingurmusic
https://www.instagram.com/vikingurolafsson/

Listahátíð á netinu
https://listahatid.is/
https://www.facebook.com/listahatid.is/