Tix.is

Um viðburðinn

Á föstudaginn 22. nóvember mun indie-popp konseptið Hipsumhaps halda aðra tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði í tilefni af útgáfu plötunnar ‘Best gleymdu leyndarmálin’. Það er orðið uppselt á tónleikana þann 20. október og því borðliggjandi að halda aðra.

Platan hefur hlotið frábærar móttökur frá gagnrýnendum sem og íslenskri alþýðu og verður hún spiluð í heild sinni þennan ágæta föstudag í takt við einlægt spjall á milli laga. Einvalalið hljóðfæraleikara munu koma fram og það verður öllu tjaldað til þess að gera kvöldið sem eftirminnilegast.

Hipsumhaps skipa þeir Fannar Ingi og Jökull Breki. Þeir stigu fyrst fram á sjónarsviðið í sumar með lag sitt ‘LSMLÍ (lífið sem mig langar í)’ sem er af mörgum talið eitt af lögum ársins. Í framhaldi af því komu út tvö önnur lög, ‘Honný’ og ‘Fyrsta ástin’, áður en að platan ‘Best gleymdu leyndarmálin’ leit dagsins ljós þann 22. september.

Bandið, konseptið, eða hvað þeir kalla sig, er talið vera með ferskari straumum íslensku tónlistarsenunnar í dag. Láttu sjá þig þann 22. nóvember. Stundum virkar lífið eins og bíómynd.

Hipsumhaps