Tix.is

Um viðburðinn

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta skipti árið 2002 á hálfrar aldar afmæli Norðurlandaráðs, en síðan kvikmyndaverðlaunin festust í sessi árið 2005 hafa þau verið veitt árlega um leið og önnur verðlaun ráðsins. Í tengslum við kvikmyndaverðlaunin stendur Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film & TV Fond) fyrir sýningum á tilnefndum myndum í samstarfi við kvikmyndahús á Norðurlöndunum. Af því tilefni mun Bíó Paradís sýna allar fimm tilnefndu kvikmyndirnar og bjóða upp á Norræna kvikmyndaveislu dagana 15. – 20. október 2019.

Dagskrá og sýningartímar fyrir hinar fimm tilnefndu kvikmyndir til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2019 má finna hér fyrir neðan - allar myndir verða sýndar á frummálinu og með enskum texta!

Kvikmyndirnar fimm sem tilnefndar eru til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2019 eru: