Tix.is

Um viðburðinn

Hið margverðlaunaða tónleikahús Harpa kynnir með stolti Reykjavík Classics sumarið 2020. Þá hefst fimmta starfsár þessarar einstöku tónleikaraðar sem bæst hefur í flóru hins fjölbreytta menningarlífs höfuðborgarinnar. Reykjavík Classics býður upp á klassíska tónlist í Eldborg í túlkun fremstu listamanna þjóðarinnar auk erlendra gestaflytjenda í einum af “tíu bestu tónleikasölum þúsaldarinnar.” (Gramophone)

Reykjavík Classics hefst 21. júní og stendur til 20. ágúst, með hádegistónleikum daglega, kl 12:30. Hverjir tónleikar eru 30 mínútur án hlés og verða meistaraverk tónlistarsögunnar flutt á fjölbreyttum efnisskrám hverrar viku, t.d. eftir Mozart, Beethoven, Schumann og Mendelssohn. Listamenn Reykjavík Classics eru einleikarar úr fremstu röð.

Listrænn stjórnandi er Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari. 

______________________________________________________________
Reykjavik Classics í Hörpu fagnar nú 5. starfsári sínu þar sem fluttir hafa verið glæsilegir klassískir tónleikar á hverju sumri í Eldborg og Kaldalóni frá 2016. Íslenskir og erlendir listamenn í fremstu röð flytja kammer- og einleiksverk klassísku meistaranna auk íslenskrar tónlistar frá rómantíska tímabilinu. Tónleikaröðin hefur hlotið frábærar viðtökur þar sem lofi hefur verið varpað á listrænan flutning í stórkostlegum hljómburði hússins.