Söngvaskáldin Ragnheiður Gröndal, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur halda sína árlegu jólatónleika undir yfirskriftinni Eitthvað fallegt. Tónleikarnir heita eftir samnefndri hljómplötu þeirra sem kom út hjá Dimmu útgáfu árið 2014. Á tónleikunum kennir ýmissra grasa úr jólagarðinum, bæði verða flutt sígild íslensk jólalög og frumsamin eftir listafólkið og er áherslan lögð á látleysi, einfaldleika og einlægni í flutningi. Allur hljóðfæraleikur er í höndum tríósins og er hljóðheimnum þannig haldið eins lágstemmdum og mögulegt er. Ragnheiður, Kristjana og Svavar leggja uppúr því að stemmningin á tónleikunum verði líkust kvöldvöku eða góðri samverustund. Þetta á því að vera hin fínasta stund fyrir alla fjölskylduna.