Tix.is

Um viðburðinn

Sunnudaginn 20. október mun indie-popp konseptið Hipsumhaps stíga á svið í Bæjarbíói í Hafnarfirði í tilefni af útgáfu plötunnar ‘Best gleymdu leyndarmálin’.

Platan hefur fengið frábærar móttökur frá gagnrýnendum sem og íslenskri alþýðu og nú á að fagna með því að spila plötuna í heild sinni í fyrsta sinn á sviði. Einvalalið hljóðfæraleikara munu koma fram og það verður öllu tjaldað til þess að gera kvöldið sem eftirminnilegast.

Hipsumhaps skipa þeir Fannar Ingi og Jökull Breki. Þeir stigu fyrst fram á sjónarsviðið í sumar með lag sitt ‘LSMLÍ (lífið sem mig langar í)’ sem er af mörgum talið eitt af lögum ársins. Í framhaldi af því komu út tvö önnur lög, ‘Honný’ og ‘Fyrsta ástin’, áður en að platan ‘Best gleymdu leyndarmálin’ leit dagsins ljós þann 22. september.

Bandið, konseptið, eða hvað þeir kalla sig, eru taldir vera með ferskari straumum íslensku tónlistarsenunnar í dag. Láttu sjá þig á þessum tímamótum í íslenskri tónlist þann 20. október. Stundum virkar lífið eins og bíómynd.

Hipsumhaps