Stína Ágústsdóttir, söngur
Carl Mörner Ringstrom, gítar
Henrik Linder, bassi
Jonathan Lundberg, trommur
Stína Ágústsdóttir söngkona, sem
er búsett og starfandi í Stokkhólmi, hefur tekist að fá með sér í lið
tónlistarmenn frá Svíþjóð sem varla er hægt að fara orðum um, svo góðir
eru þeir. Henrik Linder leikur með ofurhljómsveitinni Dirty Loops en
þeir hafa gert garðinn frægan á heimsvísu fyrir fiman hljóðfæraleik og
ótrúlegar útsetningar á þekktum popplögum. Ringström og Lundberg eru
einnig á heimsmælikvarða og hafa báðir leikið með og lært af
trommumeistaranum Virgil Donati. Saman munu þau leika þekkt klassísk
jazzlög, lög eftir James Taylor í eigin útsetningum og sitt lítið af
hverju, kryddað með yfirnáttúrulegum bassasólóum og litríkum
hljómsetningum.
Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn gerði hljómsveitinni kleift að halda í tónleikaferðalag til Íslands.