Hljómsveitin
Wardruna frestar tónleikum sínum sem áttu að fara fram 21.september 2020 fram á
næsta ár.
Tónleikarnir verða
20.september 2021 og gilda sömu miðar.
Wardruna er orðin gríðarþekkt í heiminum og vinnur út frá sögulegri tónlist víkingaaldar. Hópurinn leikur á forn hljóðfæri og sækir yrkisefni í bókmenntaarf á borð við Eddukvæði.
Wardruna má skýra sem verkefni tileinkað því að búa til tónlist í anda norrænnar menningar og hefða sveipaða dulrænu yfirbragði.
Hljómsveitin notast við mörg af elstu hljóðfærum sem finna má í norrænni menningu ásamt ljóðum og kveðskap sem hljómsveitin sameinar í nútímalegan hljóðheim.
Hljómsveitin flytur kynngimagnaða tónlist og leikur meðal annars á geithorn og önnur forn hljóðfæri. Upplifun hljómleikagesta er því mögnuð og tilfinningin er m.a. af því að vera staddir við blót og þingsetningu til forna.