Eistnaflug er innihátíð í Neskaupstað,
vinalegum litlum bæ á Austfjörðum, jafn langt frá Reykjavík og
hægt er að komast án þess að fara úr landi. Hátíðin 2019 heppnaðist gríðarlega
vel. Það var rífandi
stemning og allir fóru glaðir heim og verður Eistnaflug 2022 ekki síðri.
Síðast snérum við aftur til rótanna og héldum Eistnaflug
í Egilsbúð og gerum það að sjálfsögðu aftur
enda er Egilsbúð svo sannarlega hið rétta heimili hátíðarinnar!
Síðan 2005 hefur hátíðinni vaxið fiskur um hrygg og er nú þriggja daga
tónlistarhátíð, þar sem metal-,
harðkjarna-, pönk-, rokk- og indí-bönd deila saman sviði.
Eistnaflug er einstakur tónlistarsuðupottur, með nokkrum sérvöldum erlendum
böndum sem spila
ásamt gífurlegu úrvali alls þess besta sem íslenska senan hefur upp á að bjóða
á hverju ári.
Fylgist með okkur á Eistnaflug.is, Facebook og Instagram en
þar birtast allra nýjustu fréttir af hátíðinni og viðburðum henni tengdri!
Við lofum sturlaðri skemmtun 2022!