Tix.is

Um viðburðinn

Einir vinsælustu tónleikar Rigg viðburða verða settir upp í Eldborg sunnudaginn 1. mars en þeir hafa hlotið einróma lof undanfarin ár.

Friðrik Ómar syngur lög Vilhjálms ásamt gestum og 15 manna hljómsveit.

Friðrik hóf ungur að árum að syngja lög Vilhjálms. Björt og fögur söngröddin minnir óneitanlega á áferð raddar Vilhjálms og ekki síður skýrmælgin sem einkenndi söng Vilhjálms. Á þessum glæsilegu tónleikum, sem haldnir eru nú í áttunda sinn í Eldborg, mun Friðrik flytja lögin sem lifa með þjóðinni sem Vilhjálmur söng á sínum ferli ásamt færustu hljóðfæraleikurum þjóðarinnar, gestasöngvurum og dönsurum. Útsetningar eru í höndum Karls Olgeirssonar.

Píanó og hljómsveitarstjórn:
Jón Ólafsson

Gestgjafi og söngur:
Friðrik Ómar

Gestasöngvari:
Katrín Halldóra Sigurðardóttir

- sem sló í gegn í hlutverki Ellýjar Vilhjálms í Borgarleikhúsinu.

Dansarar:
Hanna Rún og Nikita Bazev
- margfaldir íslandsmeistarar í samkvæmisdönsum.

Hljómsveit:
Benedikt Brynleifsson, trommur
Róbert Þórhallsson, bassi
Kristján Grétarsson, gítarar
Ingvar Alfreðsson, hljómborð
Diddi Guðnason, slagverk

Sigurður Flosason, blásturshljóðfæri og slagverk
Einar Jónsson, básúna
Kjartan Hákonarson, trompet

Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, viola
Margrét Árnadóttir, cello

Margrét Eir Hönnudóttir söngur
Erna Hrönn Ólafsdóttir söngur
Helgi Reynir Jónsson, gítar og raddir

Hljóðmeistarar:
Haffi Tempó
Björgvin Sigvaldason

Ljósameistari:
Helgi Steinar Halldórsson

Verkefnastjóri:
Haukur Henriksen

Framleiðandi:
Rigg viðburðir


Stutt ágrip um Vilhjálm Vilhjálmsson
Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson fæddist í Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjunum. Fólk man ljúfa tenórrödd þessa ástsæla dægurlagasöngvara og það sem meira er, ungt fólk sem fætt er löngu eftir fráfall Vilhjálms dáir lögin sem hann gerði að sínum með persónulegum og áreynslulausum söngstíl.
Vilhjálmur ætlaði aldrei að verða dægurlagasöngvari. Stefnan var sett á háskólanám. En enginn má sköpum renna. Fyrstu skrefin á söngbrautinni voru stigin í menntaskólanum á Akureyri. Síðan tóku við sigrar með hljómsveitum Ingimars Eydals og Magnúsar Ingimarssonar. Þá urðu plöturnar vinsælar sem Vilhjálmur söng inn á ýmist einn eða með Elly systur sinni. Mörg lög lifa enn í minningunni hátt í fimmtíu árum eftir að þau komu út, svo sem Lítill drengur, Við eigum samleið og Bíddu pabbi svo að örfá séu nefnd.