Tix.is

Um viðburðinn

Gósenlandið er þriðja kvikmyndin í röð heimildamynda sem kvikmyndafélagið Gjóla ehf hefur framleitt undir stjórn Ásdísar Thoroddsen, sem beinir augum að sögu og verkmenningu á Íslandi. Sú fyrsta fjallaði um bátasmíðar, önnur fjallaði um búningasaum og nú er það sú þriðja sem fjallar um mataröflun, matseld og matarsögu. Matargerð á Íslandi einkenndist af skorti; salt vantaði, brenni vantaði, korn vantaði, flest það sem nóg var af hjá nágrannaþjóðum. Engu að síður hefur þjóðin sem byggði landið fundið leiðir til að bæta úr skortinum. Því er nafnið, Gósenlandið, ekki gefið í kaldhæðni.

GÓSENLANDIÐ - glæný íslensk heimildamynd - frumsýnd 18. október með enskum texta í Bíó Paradís!

  • ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar gilda ekki á þessar sýningar!

Ítarupplýsingar er að finna á heimasíðu myndarinnar á slóðinni hérna: www.gjola.is/gl/