Tix.is

Um viðburðinn

Laugardaginn 26. október verður blásið til styrktartónleika í Tónbergi sal Tónlistarskólans á Akranesi.

Húsið opnar kl: 17:30 og tónleikarnir hefjast kl 18:00.


Ester Eir og Ólavía eru ungar hetjur sem að glíma við erfið veikindi. Samhugur og kærleiki verða allsráðandi þessa kvöldstund sem vonandi mun gefa ungu stúlkunum byr undir báða vængi í þeirri baráttu sem þær og fjölskyldur þeirra eiga við að etja.

Allur ágóði af tónleikunum mun renna til ungu stúlknanna og fjölskyldu þeirra.

Viðburðurinn er hluti af dagskrá Vökudaga á Akranesi sem verða haldnir dagana 24. okt - 3. nóv.

Eftirfarandi listamenn koma fram:


Agnar Már Magnússon - Píanó
Ari Bragi Kárason - Trompet
Brynja Valdimarsdóttir - Söngur
Einar Scheving - Trommur
Haraldur Ægir Guðmundsson - Kontrabassi