Tix.is

Um viðburðinn

BRÍET er næst á svið á Uppklappi Nova!

Tónleikarnir fara fram í Lágmúla 9, þann 11. september kl. 20:30. Húsið opnar kl. 20:00.

Það er frítt fyrir viðskiptavini Nova! Þú sækir miðann þinn í Frítt stöff í Nova appinu, en almenn miðasala er hér á Tix.is

Miðaverð kr. 1.990,- en aðeins 1.490,- ef greitt er með Aur
Athugið að takmarkað magn miða er í boði.
Tónleikagestir fá 2 fyrir 1 af drykkjum á Nova barnum.

Uppklapp er tónleikaröð þar sem íslenskt listafólk kemur fram, með nýjum og persónulegum hætti. Auk þess að flytja sína eigin tónlist sitja þau fyrir svörum og segja okkur meðal annars frá lögunum sem þau hafa valið inn á Tónlistann þá vikuna. Við fáum þannig að skyggnast inn í hugarheim ólíkra listamanna og kynnumst tónlistinni þeirra, um leið og við fáum að vita hvað veitir þeim innblástur og hver uppáhalds lögin þeirra eru.

Inni á Tónlistanum kynnir listafólk einnig sína vinatóna sem viðskiptavinir Nova geta sett upp hjá sér. Vinatónar eru tónar sem vinir þínir heyra þegar þeir hringja í þig.

Nova elskar tónlist af öllu hjarta og hefur frá upphafi lagt mikið upp úr því að rækta grasrótina hér heima. Allur ágóði af miðasölunni rennur til listamannsins hverju sinni sem og allar tekjur af sölu vinatóna. Með því að mæta í Lágmúlann eða að sækja þér vinatón leggur þú þitt af mörkum og styður við íslenska tónlist. Aðeins 100 miðar eru í boði hverju sinni.

Ekki vera feimin/n, nældu þér í miða og sjáumst á miðvikudaginn!