Tix.is

Um viðburðinn

Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar: sönghefðinni og býður uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks. Sunnudaginn 8.desember kl.14 er það enginn annar en Þráinn Árni Baldvinsson sem leiðir söngstundina fjórða árið í röð í desember. Þráinn er bæði tónmenntakennari og rokkari í Skálmöld og ekki síst er hann sveitastrákur að norðan sem kann fullt af fínum sögum úr sveitinni.

Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 krónur inn, eins og venja er til. Textar á tjaldi og allir taka undir með sínu nefi í klukkustund. Allir velkomnir.

Veitingastaðurinn í Hannesarholti er opinn frá kl.11.30 til 17 og risloftið stendur til boða allan daginn.