Tix.is

Um viðburðinn

Póstburðarmaðurinn Jacob Singer reynir hvað hann getur að ná utan um brotakennt líf sitt og minningar. Hann er þjakaður af ofskynjunum, endurliti í leiftursýn úr fortíðinni, þegar hann var kvæntur maður og átti son sem nú er látinn, og til stríðsins í Víetnam, og samsærishugmyndum. Nýja eiginkonan reynir hvað hún getur að hjálpa honum, en mörkin milli veruleika og ofskynjana, verða sífellt óskýrari.

Ekki missa af einstakri bíóupplifun af JACOB’S LADDER á nostalgískum Svörtum Sunnudegi 19. janúar 2020 kl.20:00 í Bíó Paradís!