Tónleikar í Hallgrímskirkju í tilefni þess að Jóhann hefði orðið 50 ára í september.
Fluttir verða kaflar úr mörgum af fegurstu verkum Jóhanns í umsjá Unu Sveinbjarnardóttur, Ólafs Björns Ólafssonar og Skúla Sverrissonar ásamt strengjasveit. Eftir hlé Virðulegu Forsetar í heild sinni undir stjórn Guðna Franzsonar.
Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við The Jóhann Jóhannsson Foundation sem fjölskylda og vinir Jóhanns stofnuðu í fyrra til að halda minningu hans á lofti og láta gott af sér leiða í hans nafni.
Eins og áður sagði hefði Jóhann orðið 50 ára 19.september og er hans minnst með tónleikum víða um heim nú í haust
thejohannjohannssonfoundation.org