Unnur Sara Eldjárn flytur franska kaffihúsatónlist í Hannesarholti ásamt píanóleikara laugardaginn 16. nóvember kl.16. Unnur hefur vakið athygli á mánaðarlegum kvöldum í Petersen svítunni auk plötunnar „Unnur Sara syngur Gainsbourg" sem kom út á síðasta ári. Lögin fjalla um ástina í hennar ýmsu myndum í suðrænum anda franskrar rómantíkur og eru þekkt í flutningi listamanna á borð við Edith Piaf, Jacques Brel, Serge Gainsbourg og Françoise Hardy.
Veitingastofurnar framreiða kvöldverð fyrir þá sem vilja á eftir tónleikunum með sérstökum frönskum matseðli. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is
Miðaverð: 2.500 kr í forsölu
3.500 kr við hurð
„Unnur Sara syngur Gainsbourg" verður á sérstöku tilboðsverði:
geisladiskar: 2.000 kr
vínylplötur: 3.500 kr