Tix.is

Um viðburðinn

Gérard Lemarquis og Les Métèques syngja og segja frá Georges Moustaki, einu ástsælasta söngvaskáldi Frakka (1934 - 2013) í Hannesarholti fimmtudagskvöldið 21.nóvember kl.20.

Búast má við afslappaðri kvöldstund með nokkrum einlægum Moustaki-aðdáendum sem kynna söngvaskáldið og heimshornaflakkarann og flytja nokkur af uppáhalds Moustaki lögunum sínum.

Kynnir og sögumaður: Gérard Lemarquis.

Gérard Lemarquis, segir sögu Moustaki, kynnir lögin og útskýrir textana á íslensku og Les Métèques túlka nokkur af vinsælustu lögum hans. Gestir sitja við borð og opinn bar á staðnum. Kvöldverður í veitingastofum á undan. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is

Les Métèques: Anna Von Heynitz (fiðla), Ásta Ingibjartsdóttir (söngur), Eyjólfur Már Sigurðsson (söngur og gítar) og Olivier Moschetta (bassi).

https://www.youtube.com/watch?v=ZutA6Y6CFfg