Tix.is

Um viðburðinn

Túttífrútturnar er nýtilkominn Burlesque hópur í ört vaxandi senu Burlesque á Íslandi. Dömur hópsins luku við námskeið hjá hinni einu sönnu Burlesque drottningu Íslands, Margréti Erlu Maack síðastliðinn maí og voru með sýningu í kjölfar þess við stórkostlegar undirtektir!

Frútturnar geta ekki beðið eftir að sýna spenntum og Burlesque þyrstum áhorfendum ný og fersk atriði, en ekki örvænta, sum af gömlu atriðunum verða líka fyrir þau aumingjans grey sem misstu af síðustu sýningunni!

Frúttur mæla eindregið með því að mæta fyrir sýningu og fá sér eitthvað gott að borða á Veganæs!