Tix.is

Um viðburðinn

ÚTGÁFUTÓNLEIKAR - GG BLÚS PUNCH

GG blús er rokkaður blúsdúett frá Álftanesi, mannaður reynsluboltum í bransanum. Guðmundur Jónsson (Sálin, Nykur, Vestanáttin) á gítar og söng og Guðmundur Gunnlaugsson (Kentár, Sixties, Jötunuxar) á trommur og söng.

Tvímenningarnir hafa undanfarin misseri spilað sígrænar ábreiður hér og hvar, um borg og bý og komið meðal annars fram á Blúshátíð Reykjavíkur við góðan orðstír.

GG blús er þessa dagana að gefa út sýna fyrstu plötu er nefnist PUNCH og ætlar að því tilefni að blása til útgáfutónleika ásamt gestum á veitingastaðnum Hard Rock Lækjargötu, föstudaginn 30. ágúst.
Leikin verða lög af nýju plötunni ásamt vel völdum blús-rokk ábreiðum genginna kynslóða.

Miðar fást hér á Tix.is og hefjast herlegheitin um kl. 22:00.

Hér er glænýtt lag sem nefnist TOUCHING THE VOID og er ágætis forsmekkur af því sem koma skal á nýju plötunni;