Tix.is

Um viðburðinn

Teknófiðludúóið Geigen & plötusnúðatvíeykið Dj Dominatricks sameina krafta sína í Geigen Galaxy #4. Geigen hefur ferðalagið með magnþrungnum hljóðum fiðlunnar sem breytast í rafbylgjur og stjörnuryk með þeim afleiðingum að rýmið verður að svartholi. Þar taka Dj Dominatricks við og ferða gesti á milli sólkerfa með dynjandi takti og mögnuðum visjúölum. 

GEIGEN: Gígja Jónsdóttir og Pétur Eggertsson / DJ DOMINATRICKS: Arna Beth og Melkorka Þorkelsdóttir. Lýsing og tækni: Hafliði Emil Barðason