Tix.is

Um viðburðinn

Á þessum tónleikum verða fluttar aríur og dúettar eftir Gaetano Donizetti og Giuseppe Verdi. Hér eigast við sópran og bariton í hlutverkum bróður og systur, föður og unnustu og föður og dóttur. Þessir dúettar eru oftar en ekki vendipunktur í óperunni þar sem örlögin ráðast og ekki verður aftur snúið. Aríur sem fluttar verða eftir sömu höfunda eru einning um ólgandi ástir og harmþrungna þrá eftir hinum elskaða eða elskuðu.

Antonía Hevesi píanóleikari er fædd í Ungverjalandi og útskrifaðist úr F.Liszt- tónlistarakademíunni í Búdapest með MA-gráðu í kórstjórn og sem framhaldsskólakennari í söng og hljómfræði. Einnig stundaði hún orgelnám við Hochschule für Musik u.darstellende Kunst in Graz í Austurríki hjá Otto Bruckner.

Hún hefur haldið fjölda tónleika sem orgelleikari og píanómeðleikari víðsvegar í Evrópu og Kanada. Hún hefur tekið þátt í meistaranámskeiðum í píanóundirleik og söng, og spilað inn á geisladiska.

Frá því í ágúst 2002 hefur Antonía verið listrænn stjórnandi og píanóleikari hádegistónleikaraðar Hafnarborgar og hefur hún ennfremur komið fram á flestum hádegistónleikum Íslensku Óperunnar frá árinu 2009. Hún var ein af stofnendum Óp-hópsins.

Á undanförnum árum hefur hún tekið þátt í uppfærslum á 30 óperum, með Norðurópi, Litla Óperukompaníinu, ÓP- hópnum og hjá Íslensku Óperunni. Hún er virk píanó-og orgelmeðleikari  í íslensku tónlistarlífi og kemur reglulega fram í tónleikum með einsöngvurum, kammerhópum og kórum.

Guðbjörg R. Tryggvadóttir sópran, lauk burtfararprófi auk söngkennaraprófs frá Söngskólanum í Reykjavík. Aðal kennarar hennar voru Magnús Jónsson og Þuríður Pálsdóttir. Framhaldsnám stundaði Guðbjörg í Kaupmannahöfn hjá Prófessor André Orlowitz. Síðustu ár hefur Guðbjörg æft undir leiðsögn Kristjáns Jóhanssonar og Antoniu Hevesi.

Guðbjörg starfaði með Kór Íslensku Óperunnar frá 1994 til 2002 og tók þátt í flestum uppfærslum Íslensku Óperunnar á því tímabili. Guðbjörg hefur víða komið fram sem einsöngvari, bæði hérlendis og erlendis. Auk nokkurra einsöngstónleika síðustu ár kom Guðbjörg fram á hádegistónleikum Kristjáns Jóhanssonar í Hafnarborg og á sýningu Ragnars Kjartanssonar í Listasafni Reykjavíkur.

Guðmundur Karl Eiri´ksson er Sunnlendingur i´ hu´ð og ha´r en hann a´ ættir si´nar að rekja til Birtingaholts, Vorsabæjar og Vestmannaeyja. Hann er sonur Eiri´ks A´gu´stssonar og Olgu Guðmundsdo´ttur, garðyrkjubænda i´ Silfurtu´ni, Flu´ðum og langafabarn organistans og to´nska´ldsins Sigurðar A´gu´stssonar.

Guðmundur lauk framhaldspro´fi i´ so¨ng fra´ So¨ngsko´la Reykjavi´kur þar sem hann lærði hja´ Garðari Thor Cortes. Einnig stundaði hann na´m i´ So¨ngsko´la Sigurðar Demetz undir leiðso¨gn Kristja´ns Jo´hannssonar. Hann lauk masters-diplo´mana´mi a´ I´tali´u undir leiðso¨gn barito´nsins, Renato Bruson fra´ Accademia Renato Bruson. Guðmundur hefur komið fram a´ to´nleikum he´rlendis sem og a´ I´tali´u. Hann hefur einnig tekið þa´tt i´ o´peruuppfærslum en hann fo´r með hlutverk Schaunard u´r La bohe´me a´ Rimini, I´tali´u undir stjo´rn Joseph Rescigno. Einnig fo´r hann með aðalhlutverkið, hlutverk Þo´rs, i´ Þrymskviðu eftir Jo´n A´sgeirsson.