Tix.is

Um viðburðinn

Íslenski dansflokkurinn frumsýnir glænýtt verk eftir hina margverlaunaðu Elinu Pirinen, frá Finnlandi. Rhythm of Poison er samið í samstarfi við Íslenska dansflokkinn, tónskáldið Ville Kabrell, dramatúrginn Heide Väätänen og sviðslistamanninn Valdimar Jóhannsson.

Rhythm of Poison er fjörug og hrífandi tjáningarveisla þar sem iðkaður er dulvitundardans og dýrðlegur söngur í dásamlegri veröld dómsdagstónlistar- og mynda. Það er löngun danshöfundarins Pirinen að vinna náið með ímyndunaraflið, kynhvöt, villileika og nánd.

Rhythm of Poison tælir áhorfendur til þess að drukkna í eigin hugsunum og verða vitni af ómengaðri gleði, framför, afturför, rómantík, hugrekki örvæntinga og fegurð þráhyggjunnar.

Verkið verður frumsýnt 28. febrúar á Nýja sviði Borgarleikhússins.

Vinsamlegast athugið að MIÐAFJÖLDI ER TAKMARKAÐUR.

 

Danshöfundur: Elina Pirinen

Tónlist: Ville Kabrell

Dramatúrg: Heidi Väätänen

Ljósahönnuður: Valdimar Jóhannsson

Dansarar: Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Halla Þórðardóttir, Saga Sigurðardóttir, Shota Inoue, Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Una Björg Bjarnadóttir