Tix.is

Um viðburðinn

Tveir frábærir samtímakórar leiða saman hesta sína á tónleikum sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta framhjá sér fara!

Danski kórinn Vocal Line og íslenski kórinn Vocal Project eru um margt ólíkir en eiga þó sameiginlegt að hafa vakið athygli fyrir fágaðan söng í flóknum og fjölbreyttum útsetningum. Kórarnir einblína báðir á samtímatónlist, svo sem popp, rokk, jazz og dægurlagatónlist.

Vocal Project er stór hópur söngfugla sem lætur helst til sín taka á rytmíska sviðinu. Kórinn heldur reglulega tónleika á höfuðborgarsvæðinu, ýmist rafmagnaða eða órafmagnaða, með eða án undirleiks. Tónleikar Vocal Project hafa verið vel sóttir og oft komast færri að en vilja.

Stjórnandi kórsins er Gunnar Ben. Gunnar er Mývetningur, óbóleikari, þungarokkari og dósent í skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskóla Íslands.

---

Vocal Line er a cappella kór sem samanstendur af 30 söngvurum sem með einlægri innlifun, listrænu skynbragði og einkennandi hljóm ná á hverjum tónleikunum á fætur öðrum að snerta huga og hjörtu áheyrendanna. Vocal Line hefur frá upphafi haft það að markmiði að vera í fararbroddi á lands- og alþjóðavísu varðandi þróun á rytmískum kórsöng.

Í gegnum árin hefur Vocal Line öðlast mikla viðurkenningu fyrir starf sitt, bæði í Evrópu og víðar um heim og unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna. Vocal Line urðu valin "Eurovision kór ársins 2019", keppni sem haldin var í Svíþjóð milli 10 evrópskra kóra. Kórinn fékk þar að auki nafnbótina “European Voices Award” fyrr á árinu. Vocal Line hefur haft heiðurinn af að syngja með heimsþekktum tónlistarmönnum á borð við Bobby McFerrin í New York og Rolling Stones á Hróarskeldu hátíðinni.

Um langt skeið hefur Vocal Line haft ákveðna tengingu við Ísland, og m.a. sungið lög eftir Björk, Ásgeir Trausta og hjónin Helga Jónsson og Tinu Dickow, sem nú eru búsett á Íslandi. Tónlistarmyndband við titillag síðustu plötu Vocal Line, True North, er unnið af íslenska ljósmyndaranum Gísla Dúa og þá er Þingeyingurinn Gunnar Sigfússon fyrsti og eini Íslendingurinn sem syngur með Vocal Line. Vegna þessarra tengsla heldur kórinn nú loksins í langþráða tónleikaferð til Íslands til að leyfa Íslendingum að njóta tónlistarinnar. Þau ætla að slást í för með Vocal Project í Hörpu en halda einnig sjálf eftirfarandi tónleika:

10. september kl. 17: Reykjahlíðarkirkja.
11. september kl. 20: Hof, Akureyri.
12. september kl. 20: Skálholtskirkja.