Tix.is

Um viðburðinn

Danski samtímakórinn Vocal Line, nýkrýndur sigurvegari “Eurovision Kóranna 2019” kemur í tónleikaferðalag til Íslands í september. Enginn tónlistarunnandi ætti að láta þennan einstaka kór framhjá sér fara!

 

Vocal Line er a cappella kór sem syngur samtímatónlist í nýjum og skapandi útsetningum fyrir 10-12 raddir, sem eru unnar sérstaklega með Vocal Line í huga. Kórinn samanstendur af 30 söngvurum sem með einlægri innlifun, listrænu skynbragði og einkennandi hljóm ná á hverjum tónleikunum á fætur öðrum að snerta huga og hjörtu áheyrendanna. Vocal Line hefur frá upphafi haft það að markmiði að vera í fararbroddi á lands- og alþjóðavísu varðandi þróun á rytmískum kórsöng, með áhrifum frá popp, rokk og jazz. Kórinn einblínir stöðugt á að finna nýjar leiðir fyrir a cappella tónlistina og stefnir alltaf á hærri og nýrri brautir.

 

Í gegnum árin hefur Vocal Line öðlast mikla viðurkenningu fyrir starf sitt, bæði í Evrópu og víðar um heim og unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna. Vocal Line var valinn "Eurovision kór ársins 2019", í keppni sem haldin var í Svíþjóð milli 10 evrópskra kóra. Kórinn fékk þar að auki nafnbótina “European Voices Award” fyrr á árinu. Vocal Line hefur haft heiðurinn af að syngja með heimsþekktum tónlistarmönnum á borð við Bobby McFerrin í New York og Rolling Stones á Hróarskeldu hátíðinni.

 

Um langt skeið hefur Vocal Line haft ákveðna tengingu við Ísland, og m.a. sungið lög eftir Björk, Ásgeir Trausta og hjónin Helga Jónsson og Tinu Dickow, sem nú eru búsett á Íslandi. Tónlistarmyndband við titillag síðustu plötu Vocal Line, True North, er unnið af íslenska ljósmyndaranum Gísla Dúa og þá er Þingeyingurinn Gunnar Sigfússon fyrsti og eini Íslendingurinn sem syngur með Vocal Line. Vegna þessarra tengsla heldur kórinn nú loksins í langþráða tónleikaferð til Íslands til að leyfa Íslendingum að njóta tónlistarinnar.

 

Efnisskrá tónleikanna inniheldur fjölbreytt samtímalög, bæði vel þekkt og minna þekkt, allt flutt án undirleiks.