Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Vök sendi fyrr á árinu frá sér sína aðra breiðskífu, „In The Dark“ og í kjölfarið hóf hún ítarlegt tónleikaferðalag um Evrópu við góðar undirtektir. Þau spiluðu einnig fyrr á árinu á Græna Hattinum og heppnuðust þeir tónleikar gríðarlega vel og pakkað hús. Forsala miða á tónleikana er hafin á Tix.is og er miðaverð aðeins 3.500 kr. Vök hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi frá því að þau unnu Músíktilraunir 2013. Síðan þá hefur sveitin gefið út tvær stuttskífur (EP) og breiðskífuna, „Figure“ sem var valin 'Raftónlistarplata ársins 2017' á Íslensku Tónlistarverðlaununum. Sveitin hefur verið á þrotlausum tónleikaferðum um allan heim undanfarin ár og er ekkert gefið undan við að fylgja á eftir nýju plötunni. Vök er á mála hjá útgáfufyrirtækinu Record Records á Íslandi en Nettwerk utan landsteinanna.