Hinsegin kórinn
heldur tónleika Í Norðurljósasal Hörpu miðvikudaginn 14. ágúst kl. 20:00, ásamt
gestakórnum Rock Creek Singers.
Tónleikarnir eru hluti af dagskrá Hinsegin daga
í Reykjavík.
Hinsegin kórinn flytur fjölbreytt lög, sem öll eiga það
sameiginlegt að snerta hjartastrengi hinsegin fólks, hvort sem er vegna
umfjöllunarefnis þeirra eða lagahöfundanna. Stjórnandi Hinsegin kórsins er
Helga Margrét Marzellíusardóttir og píanóleikari er Halldór Smárason.
Gestakórinn Rock Creek Singers er hluti af hinum gríðarfjölmenna Gay Men´s
Chorus of Washington DC. Stjórnandi er Dr. Thea Kano.