Dýrðleg og dansandi drag-revía
Fjöllistahópurinn Endurnýttar væntingar kynnir með stolti Endurminningar valkyrju. Magnaðan dragfögnuð til heiðurs hinni kyngimögnuðu kvenhetju, Brynhildi. Ævintýrum söguhetjunnar verða gerð skil í mögnuðum dansi, stórfenglegum söng og hlálegum hamagangi.
Gestgjafar kvöldsins eru þaulvanar drottningar leiksviðs og næturlífs. Þær tala tæpitungulaust og koma til dyranna eins og þær eru klæddar, prýddar rúbínum og eðalsteinum frá toppi til táar, tilbúnar að gleðja ykkur með sínum guðsgjöfum og vafasama vafstri. Þetta er sýningin sem þú hefur beðið eftir!
Þetta er fyrsta verk hópsins en forsprakkar hans eru dansararnir Ásgeir Helgi Magnússon og Cameron Corbett. Þeir hafa starfað saman um árabil innan raða Íslenska dansflokksins auk þess sem þeir hafa komið víða við í íslenskum sviðslistum.
Flytjendur: Agatha P., Faye Knús, Gógó Starr & Sigga Eyrún
Höfundar: Ásgeir Helgi Magnússon, Cameron Corbett, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigurður H. Starr Guðjónsson
Listrænir stjórnendur: Ásgeir Helgi Magnússon & Cameron Corbett
Búninga- og sviðshöfundur: Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Ljósahönnuður: Kjartan Darri Kristjánsson
Tónlist: Ýmsir höfundar auk frumsaminnar tónlistar eftir hópinn og Karl Olgeirsson
Markaðsstjóri: Bryndís Nielsen
Útsetning, upptaka og
hljóðblöndun frumsaminnar tónlistar: Helgi Reynir Jónsson
Ljósmyndir fyrir kynningarefni: Mink Viking Portrait Studio
Styrktaraðilar: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Launasjóður listamanna