Tix.is

Um viðburðinn

Sálufélagar bjóða þér í partý til heiðurs ímynd okkar, okkar Íslendinga. Á þessari samkomu eru allir eru meðvitaðir um forréttindi sín, inngildingu er hampað og fjölbreytileikanum fagnað. Hér getur þú verið besta útgáfan af sjálfum þér.

Lokaðu augunum. Hlustaðu á þögnina. Hér er enginn nema þú. Finndu mosann undir iljunum. Skynjaðu kraftinn ólga í iðrum jarðar, hvernig hann streymir upp og í gegnum nakið hold þitt. Þú og ósnortin náttúran verðið eitt og þú finnur hvað þú ert agnarsmá í víðáttumikilli auðninni: saklaus, tær, ótamin, dulúðleg, framandi, - en kunnugleg. Þetta er land hins óvænta, land leyndardómanna. Landið þitt.

Sálufélagar er sviðslistahópur stofnaður árið 2015 af Nínu Hjálmarsdóttur og Selmu Reynisdóttur. Hópurinn notast við aðferðir samsköpunarleikhúss við sviðssetningu sjálfs og ímyndar. Fyrri verk hópsins eru Mátulegt (2015), sem var einnig frumsýnt á NEU/NOW hátíðinni í Amsterdam, og Sálufélagar (2016). Fyrsta útgáfa Independent Party People var sýnt sem ‘verk í vinnslu’ í Mengi, ágúst 2018. Í framhaldi af því fengu Sálufélagar styrk frá mennta- og menningarmálaráðuneyti til að fullgera verkið.


Höfundar og flytjendur: Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson, Nína Hjálmarsdóttir og Selma Reynisdóttir.

Leikstjóri: Brogan Davison
Framkvæmdastjórar: Nína Hjálmarsdóttir og Selma Reynisdóttir
Sviðsmynd: Katerina Blahutová
Dramatúrgísk aðstoð: Brogan Davison og Pétur Ármannsson
Tónlist: Sigrún Jónsdóttir
Ljósahönnun: Aron Martin Ásgerðarson
Búningar: Tanja Huld Levý
Markaðsstjórn: Heba Eir Kjeld
Ljósmyndari: Owen Fiene
Grafísk hönnun: Jón Kári Eldon

Verkefnið er stutt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.