Tix.is

Um viðburðinn

Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran og Edda Erlendsdóttir píanóleikari flytja dagskrá í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 25.september kl.20 sem ber yfirskirftina Raddir í Loftinu. Söngflokkurinn Raddir í Loftinu verður frumfluttur á tónleikunum. Flokkurinn er eftir John Speight við ljóð Sigurðar Pálssonar en flokkurinn var saminn fyrir Sigríði Ósk. Dagskráin er spunnin í kringum þennan söngflokk og úr varð frönsk-íslensk dagskrá sem inniheldur ásamt þessum flokki m.a. sönglög eftir Reynaldo Hahn og Maurice Ravel. Raddir frá ýmsum áttum og ýmsum tímum tala til okkar í gegnum sönglög tónleikanna en þau eru m.a. frá Íslandi, Spáni, Feneyjum og Frakklandi ásamt hebreskum seiðandi söngvum.

Kvöldverður verður framreiddur á undan tónleikunum í veitingastofum Hannesarholts fyrir þá sem það vilja. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is