Tix.is

Um viðburðinn

Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð bæði fyrir sína eigin frumsömdu tónlist og fyrir nálgun sína á sígild íslensk sönglög. Hann hefur vakið athygli fyrir vald sitt á samspili söngs og hljóðfæris – aðalsmerki trúbadorsins – sem og skemmtilega sagnamennsku milli laga. Einlægni og hlýja ráða ríkjum í tónlist Svavars Knúts, sem þó er krydduð með húmor inn á milli. Hann hefur ferðast víða um heim með tónlist sína og notið mikillar velgengni í Evrópu sem og heima fyrir.

Miðar verða í forsölu hér á Tix á 1.500 kr og 2.000 við dyrnar.