Tix.is

Um viðburðinn

Þýski trommuleikarinn Anika Nilles er einn þekktasti trommari heims um þessar mundir. Nú ætlar hún að stíga á svið í sal tónlistarskóla FÍH og sýna okkur listir sínar. Anika hefur vakið gríðarlega athygli um heim allan undanfarin ár, ekki einungis fyrir framúrskarand tækni og færni heldur fyrir skemmtilega framkomu og frábæra tónlist sem hún gerir ásamt hljómsveit sinni Nevell. Að þessu sinni er Anika ein á ferð og verður með svokallað "clinic" þar sem hún bæði spilar og spjallar við áhorfendur