Óteljandi hliðar sjálfs þíns í stöðugri leit að nýjum sjálfsmyndum. Þú skapar heilt ríkidæmi af sjálfum en tjáning þín er takmörkuð. Jafnvel ertu að reyna að flýja fjarlægan heim með því að tengja þig við veruleika þar sem tjáningarfrelsið er ótakmarkað, spegilmynd hugsana þinna. Sumir upplifa frelsi, aðrir innilokun og allt þar á milli. Tengir þú þig betur við þitt einfaldasta form eða hið íburðamikla? Hvort þeirra er hið náttúrulega, hið ósvikna? Er það firring að leitast eftir svari um hver þú ert í þessari yfirþyrmandi ringulreið samfélagsins.
Dagar líða hjá, yfirfullir af upplýsingum en án nokkurra gjörða. Sleip samskipti en sterílsk líkamstenging. Föst í endalausu harki frekar en að fá bara að vera.
Filterar þú þig til að gerast þráð eða þráiru að vera filteruð? Ein í hópi einmana einstaklinga sem mjakast áfram í sömu óþekktu áttina. En blindandi skjábirtan er spennandi og flæðir í ófilteraða dópamínvímu.
Danshöfundur: Andrean Sigurgeirsson í samvinnu við dansara FWD
Aðstoðardanshöfundur: Sara Margrét Ragnarsdóttir
Dansarar: Aþena Örk Ómarsdóttir, Birna Karlsdóttir, Bjartey Elín Hauksdóttir, Emilie Anne Jóhannsdóttir Salvesen, Eyrún Andrésdóttir, Guðrún Mist Hafsteinsdóttir, Katie Hitchcock, Kristný Eiríksdóttir, Lena Margrét Jónsdóttir og Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
Hljóðmynd: Jón Múli
Grafík: Arna Beth