Pole Theatre er röð alþjóðlegra súludanskeppna sem á uppruna sinn í Ástralíu og er nú haldin í fyrsta skipti á Íslandi.
Keppt er í fjórum flokkum; Art, Classique, Comedy og Drama, en í keppninni er lögð rík áhersla á skemmtanagildi atriða. Í Art sýna keppendur færni sína í ýmsum dansstílum með súlunni; í Drama er reynt að hreyfa við áhorfendum með grípandi sögum; í Comedy er reynt að fá áhorfendur til að hlæja; og í Classique er uppruni sportsins hafður í hávegi með hælum og hársveiflum.
Keppt er í tveim erfiðleikastigum, Amateur og Professional, en það eru um 20 keppendur á hvoru stigi, frá samtals 16 löndum og er Ísland að sjálfsögðu eitt þeirra.
Alhliða sigurvegarar í bæði Amateur og Professional tryggja sér svo þátttökurétt í heimsmeistaramótinu Pole Theatre Worlds 2020.
Erlendir dómarar eru ekki af verri endanum, Marlo Fisken: lengi talin sú allra fremsta í sportinu og frumkvöðull í súluheiminum, Marion Crampe ein helsta súlustjarnar í sportinu og hin magnaða Jordan Kensley
Það er svo engin önnur en Margrét Erla Maack sem verður kynnir keppninnar og heldur stuðinu gangandi.
Húsið opnar kl. 15:30 og keppni hefst kl. 16:00 í Amateur erfiðleikastigi
Húsið opnar kl. 19:30 og keppni hefst kl. 20:00 í Professional erfiðleikastigi
----- 18 ára aldurstakmark -----
Nánari upplýsingar á https://www.poletheatreiceland.com/