Tix.is

Um viðburðinn

HVAÐ EF VIÐ ERUM EKKI NÓGU FYNDIN, ÞROSKUÐ, ÆÐISLEG OG SEXÝ?

Hver er ég? Er ég það sem ég held að ég sé? Eða það sem þú heldur að ég sé? Er ég kannski bara það sem ég held að þú haldir að ég sé? Í sturlaðri von um að vera nógu æðisleg, sexý, fyndin og þroskuð engjumst við um í baráttunni við ófullkomleikann. Við finnum fiðringinn þegar við hljótum viðurkenningu umhverfisins en fyllumst einmanaleika og skömm þegar við afhjúpum okkur. Er ég nógu góð? Er ég best? Er ég yfirhöfuð eitthvað án tungumáls, kyns, þjóðernis...og vegabréfs? HÚH!

Leikhópurinn RaTaTam hefur á skömmum tíma orðið þekktur fyrir afgerandi sýningar. Með hlýju, húmor, leik og tónlist skoðar hópurinn ófullkomleika mannsins, draumasjálfið, leyndarmál og landamæri; hvernig sjálfsmyndin þyrlast um allslaus og nakin í hrárri og skynlausri hreinskilni. Fyrri verk RaTaTam eru heimildasýningin Suss! sem byggði á reynslusögum fólks um heimilisofbeldi og Ahhh... sem var gerð eftir textum Elísabetar Jökulsdóttur og hefur leikhópurnin hlotið verðskuldaða viðurkenningu, tilnefningar og verðlaun auk þess að hafa verið boðið á leiklistarhátíðir víðs vegar um Evrópu.


Handrit: RaTaTam

Leikstjórn: Charlotte Bøving

Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist: Helgi Svavar Helgason og RaTaTam

Leikgervi: Þórunn María Jónsdóttir

Hljóð: Helgi Svavar Helgason og RaTaTam

Listræn aðstoð: Stefán Ingvar Vigfússon

Framkvæmdastjóri: Halldóra Rut Baldursdóttir

Leikarar Albert Halldórsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Guðrún Bjarnadóttir, Halldóra Rut Baldursdóttir og Hildur Magnúsdóttir

Frumsýning 27. september