Tix.is

Um viðburðinn

LÍFIÐ GETUR VERIÐ SVO NIÐURDREPANDI

Lífið er dálítið niðurdrepandi á útfararstofu Jóns. Samt kviknar smá lífsneisti með syni hans, Helga Þór líksnyrti, þegar aðstandandi líksins á börunum birtist; ung stelpa sem hann þekkir. Það lifnar yfir þeim báðum, þau skilja hvort annað og eru að byrja að tengjast þegar Jón mætir á svæðið. Hann er móður og másandi eftir að hafa séð sýnir og kastar hann fram spádómi um að líf Helga sé í stórhættu. Og þar með byrjar allt. Helgi Þór rofnar er drepfyndið og spennandi leikrit um það hvort maðurinn komist undan sögunni um sig, geti losað sig úr álögum og hætt að trúa á spádóma.

Þetta er fimmta verkið sem Tyrfingur Tyrfingsson frumsýnir í Borgarleikhúsinu en fá af leikskáldum nýrrar kynslóðar hafa vakið jafn mikla athygli og notið jafn mikillar hylli. Áður hafa Kartöfluæturnar, Auglýsing ársins, Bláskjár og Skúrinn á sléttunni verið sýnd hér og kynnt á leiklistarhátíðum í Evrópu. Von er á uppfærslu á Kartöfluætunum í einu virtasta leikhúsi Hollands, Toneelgroep Oostpool sem hefur einnig tryggt sér réttinn á þessu nýja verki: Helgi Þór rofnar.

 

Höfundur Tyrfingur Tyrfingsson

Leikstjórn Stefán Jónsson

Leikmynd Gretar Reynisson

Búningar Stefanía Adolfsdóttir

Lýsing Pálmi Jónsson

Leikgervi Margrét Benediktsdóttir

Hljóð Garðar Borgþórsson

Leikarar Bergur Þór Ingólfsson, Hilmar Guðjónsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Frumsýning 18. janúar 2020