Tix.is

Um viðburðinn

„SÖNN SAGA? HVAÐ ER ÞAÐ? SANNLEIKURINN ER RÓF!“

Heimildarmyndagerðarkonan Rakel er stödd í niðurníddum iðnaðarbæ, djúpt í Amazon-frumskóginum, ásamt Andra, tökumanni sínum og elskhuga. Þau eru að gera heimildarmynd um föður Rakelar sérvitra Nóbelskáldið Benedikt, sem er dauðvona. En feðginin hafa ekki hist í áratugi og geta ómögulega komið sér saman um hvernig Benedikt á að birtast í heimildarmyndinni. Óuppgerð fjölskyldumál og framandi hitasótt blandast sjálfu höfundarverki Benedikts í draumkennda og ærslafulla atburðarás þar sem áreiðanleiki heimsins fellur í sundur.

Verkið er spennandi könnunarleiðangur um hinar mörgu hliðar sannleikans og þrá mannsins eftir því að skilja eitthvað eftir sig. Er hægt að gera hlutlausa heimildarmynd? Er hægt að vita og miðla sannleikanum? Hvað þá sannleikanum um sjálfan sig?

Björn Leó Brynjarsson er einn af mest spennandi höfundum ungu kynslóðarinnar. Hann var leikskáld Borgarleikhússins leikárið 2017/18 og Stórskáldið er afrakstur vinnu hans.

Höfundur Björn Leó Brynjarsson

Leikstjórn Pétur Ármannsson

Leikmynd Ilmur Stefánsdóttir

Búningar Ilmur Stefánsdóttir

Lýsing Pálmi Jónsson

Myndband Pálmi Jónsson

Leikgervi Margrét Benediktsdóttir

Hljóð Þórður Gunnar Þorvaldsson

Leikarar Hilmar Guðjónsson, Jóhann Sigurðarson, Unnur Ösp Stefánsdóttir

Frumsýning 18. Október