Á opnunartónleikum sumardagskrár
Múlans kemur fram bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson ásamt
kvaretti sínum. Hann gaf út sína fyrstu sóló plötu, ÁRÓRA, í september
2018 og hlaut hún tvennar tilnefningar til Íslensku
Tónlistarverðlaunanna í flokki jazz- og blústónlistar. Tónlistinni má lýsa
sem kraftmikilli blöndu af jazzi, poppi og rokki sem ber keim af nokkurri
ævintýramennsku en þó stöðugleika á köflum. Á tónleikunum munu lög af plötunni
fá að hljóma auk nokkurra splunkunýrra laga í bland við önnur skemmtileg
lög.