Tix.is

Um viðburðinn

Jónas Sig sló í gegn með Sólstrandargæjunum á síðustu öld áður en hann hvarf til annarra verkefna.  Árið 2007 gaf hann út sína fyrstu sólóplötu og vakti umsvifalaust athygli fyrir beinskeytta texta og kraftmikla tónlist sína. Þrettán árum síðar mætir þessi skeleggi Þorlákshafnardrengur í Salinn til Jóns Ólafssonar og þeir ræða áhugavert lífshlaupið auk þess að flytja lögin og textana sem ramma inn farsælan feril Jónasar.