Tix.is

Um viðburðinn

Helga Kvam píanó

Þórhildur Örvarsdóttir söngur

María drottning dýrðar er tónleikadagskrá helguð íslenskri tónlist við Maríuvers og bænir. Íslensk tónskáld hafa í gegnum aldirnar sótt innblástur í Maríuversin og gera enn í dag. Á tónleikunum munum við rekja okkur í gegnum síðustu 100 ár í íslenskri tónlistarsögu og færa ykkur rjómann af Maríutónlist þess tímabils með tónskáld á borð við Atla Heimi Sveinsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Sigvalda Kaldalóns, Karl O. Runólfsson og Sigurð Flosason innanborðs.

Á tónleikunum mun ný tónlist verða í aðalhlutverki þar sem tónskáld samtímans vefa Maríu ný klæði.

Helga og Þórhildur hafa unnið saman um nokkurra ár bil og flutt söngdagskrár með íslenskri tónlist vítt og breitt um landið við mikið lof áheyrenda.


Tónleikarnir eru styrktir af Sóknaráætlun Norðurlands eystra