Tónlistarmaðurinn Auður gaf út sína aðra breiðskífu í nóvember síðastliðnum sem ber heitið Afsakanir.
Auður og platan hans Afsakanir hefur fengið frábærar
viðtökur en hann frumflutti plötuna á Iceland Airwaves og fékk mikið lof fyrir.
Platan hefur vakið mikla athygli fyrir að vera framsækin, einlæg og beinskeitt
og sumir gagnrýnendur og tónlistarnöllar vilja meina að hún sér tímamótaplata í
íslenskri R&B-tónlist. Nýja platan verður leikin í heild sinni en einnig
hans þekktustu lög af fyrri útgáfum. Það er alltaf mikil upplifun að sjá Auður
á sviði.
Hljómsveitina skipa:
Daníel Friðrik Böðvarsson - Rafgítar og rafbassi
Ellert Björgvin Schram - hljómborð og rafbassi
Magnús Jóhann Ragnarsson - hljómborð og hljómsveitarstjórn
Þorvaldur Þór Þorvaldsson - Trommur