Hljómsveitin Huldumenn munu rokka til heiðurs sjómönnum föstudagskvöldið 31. maí í Höllinni Vestmannaeyjum.
Hljómsveitin er ný af nálinni en byggð á góðum grunni, um er að ræða meðlimi CCR Bandsins sem hafa verið á ferðinni
um landið með tónleika til heiðurs Creedence Clearwater Revival og fyllt hvert húsið á fætur öðru.
Um þessar mundir eru Huldumenn að leggja lokahönd á nýja rokkplötu með splunkunýju efni sem
mun líta dagsins ljós nú í sumar.
Að sjálfsögðu verður gömlu Creedence lögin í hávegum höfð þetta kvöld og eins allt það frábæra rokk sem Biggi Gildra hefur sungið í gegnum tíðina. Þú vilt ekki missa af þessu!
Hljómsveitina skipa:
Birgir Haraldsson Söngvari
Sigurgeir Sigmundsson Gítarleikari
Birgir Nielsen Trommuleikari
Jóhann Ingvason Hljómborðsleikari
Ingimundur Óskarsson Bassaleikari
Verð aðeins 3.900,- í forsölu en 4.500,- við hurð.
Forsala miða hefst á tix.is og í Tvistinum 15. Maí.
Húsið opnar klukkan 21.00 - tónleikar hefjast klukkan 22.00
Borðapantanir hjá Hödda í síma 669-0609