Ravel og Sibelius –
Sinfóníuhljómsveit Íslands
- Upphafstónleikar
Georges Bizet:
L’Arlésienne, svíta
Maurice Ravel:
Píanókonsert fyrir vinstri hönd
Anna Þorvaldsdóttir:
Aeriality
Jean Sibelius: Sinfónía
nr. 1
Yan Pascal Tortelier
hljómsveitarstjóri
Jean-Efflam Bavouzet
einleikari
Tónleikakynning » 18:00
Á fyrstu áskriftartónleikum Sinfóníuhljómsveit Íslands hljómar glæsileg efnisskrá með franskri og norrænni tónlist. Þessi efnisskrá verður svo tekin aftur upp í febrúar 2020, en þá heldur hljómsveitin í tónleikaferð til Bretlands. Það er fyrrum aðalhljómsveitastjóri hljómsveitarinnar, Yan Pascal Tortelier sem heldur um tónsprotann. .
Franski píanósnillingurinn Jean-Efflam Bavouzet heillaði tónleikagesti upp úr skónum á Listahátíð í Reykjavík 2016, þegar hann lék píanókonsert Ravels með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Samkvæmt gagnrýnanda Fréttablaðsins tók hann „þvílík heljarstökk eftir hljómborðinu að maður saup hveljur“ og viðtökurnar voru eftir því. Nú kemur hann með hinn píanókonsert Ravels í farteskinu, þann sem tónskáldið samdi fyrir þýska píanistann Paul Wittgenstein. Sá hafði misst hægri hönd í heimsstyrjöldinni fyrri en hélt ótrauður áfram tónleikahaldi og pantaði fjölda verka frá samtímatónskáldum.
Fyrsta sinfónía Sibeliusar er dásamlegt verk í rómantískum anda, samin undir sterkum áhrifum frá Tsjajkovskíj. Engu síðri er sviðsmúsík Bizets við leikritið Stúlkan frá Arles, sem sett var á svið í París árið 1872, þremur árum áður en óperan Carmen var frumsýnd. Leikritið þótti takast illa og fór af fjölunum eftir fáeinar sýningar. Bizet brá þá á það ráð að safna bestu þáttunum saman í syrpu sem náði miklum vinsældum, svo að nafn tónskáldsins var á hvers manns vörum í Parísarborg.